Mín bara í bloggstuði þessa dagana
Bara verð að deila með ykkur fatabúðaleiðangri gærdagsins. Þannig er að mig er búið að langa í gallapils í allt vor en hef ekki fundið rétta stærð í þessum hefðbundnu búðum sem ég hef verslað í (Evans Zikk Zakk, Belladonna of fl.) Var stödd í Kringlunni í gær og fór inn í hálfgerða “konubúð” en þar var pils, ég máta. NB! það er ansi langt síðan ég hef verið að máta buxur og pils þannig að ég hafði ekki hugmynd um hvað stærð ég nota
Byrja á 48 -af gömlum vana, allt of stórt, 46 æ svona frekar vítt, 44 OK nú var e-ð að ganga VIÐ ERUM AÐ TALA UM NR 44! ég á sko buxtur nr 52!!!!! en e-ð var sniðið samt ekki að henta mér né verðið 9500kr fyrir gallapils! Hætti við í bili.
Síðar um daginn á ég leið í Borgartún og ákveð að skella mér á Laugarveginn í leiðinni. Flash auglýsti nebblega gallapils og fl í blaðinu. Ég inn vantrúuð á að passa í nokkurt þar (það eru örugglega að verða 10 ár síðan ég verslaði þarna síðast) finn pils í XL, mín inn að máta og viti menn PILSIÐ PASSAÐI!!!
og ekki spillti verðið 3990 kr. Held ég hafi svifið 10 cm frá gólfinu þegar ég gekk út. Þá að öðru.
Í dag eru 10 ár síðan ég kláraði B.ed. gráðu frá KHÍ sem þroskaþjálfi. Við vorum fyrsti hópur þroskaþjálfa sem kláraði þetta nám á háskólastigi og erum -held ég- stolt af því. Af því tilefni ætlum við bekkurinn að hittast (öll í fyrsta skiptið!) í heimahúsi, rifja upp góða daga, borða og fá okkur smá í aðra tána (nema ég auðvitað sem er í banni og það halda örugglega allir að ég sé ólétt að DDV sé bara yfirskyn
)
Jæja vinkona mín ætlar að koma á eftir og mála mig -ég var nefninlega að skoða myndir frá því fyrir 10 árum úff ég vissi ekki að maður breytist svona mikið. Að vísu er ég búin að ganga með og eiga 3 börn, og þar eru allavega einhver kíló sem komu þar en mikið er nú samt gott allavega fyrir mig að vita að ég er búin með 20 kg af þessum ca 40 sem ég hef verið að burðast með undanfarin ár. Ég ef nefninlega ekki viss um að það væri eins mikill hugur í manni að punta sig og kaupa ný föt fyrir kvöldið ef ég væri 20 kg þyngri
svona er það bara. Þess vegna er ég bara glöð og ánægð með þennan árangur og held ótrauð áfram þrátt fyrir smá hliðarspor. Það hjálpar mér líka mikið að lesa blogginn hjá ykkur hinum sem eruð í sömu baráttu. Saman getum við þetta með hjálp bloggheima
Góða helgi!
Gerður