Posted by: Gerður | ágúst 27, 2008

JAHÁ!

Vigtun dagsins kom mér verulega og skemmtilega á óvart.  Niður um 1,2 kg!  Ég hef nefninlega alls ekki verið 100% þessa vikuna en passað upp á skammta og verið að borða besta og ferskasta grænmeti sem fæst norðan Alpafjalla!  Mæli með að allir fái sér bíltúr að Reykjum hér í Mosó því þar er æðislegur grænmetismarkaður :)

Nú sit ég heit að innan og utan eftir stelpurferð í Laugardagslaugina (suðum okkur í pottunum -ekkert synt í þetta sinn en meira kjaftað) nýbúin að gæða mér á PING pinna sæl og glöð á leið í skólann í fyrramálið.

Góða nótt :)

Gerður

Posted by: Gerður | ágúst 26, 2008

Síðasta vikan mín sem heimavinnandi húsmóðir!

Þá er hún hafin síðasta vikan mín sem “bara” heimavinnandi.  Soldið skrýtin tilfinning en alls ekki vond :)   Þar sem ekki er stefnt á fleiri börn þá á ég ekki eftir að taka fleiri fæðingarorlof.  Hef verið heima með öllu börnunum í a.m.k. ár þannig að samanlagt er þetta svona:

Sá stóri hætti að vinna 1 sept en beið í 1 mán þar til honum þóknaðist að koma.  Fór svo að vinna þegar hann var 11 mán.

Skvísan var að flýta sér í heiminn og fæddist 1 degi eftir að ég hætti að vinna á viku 38. Fór svo að vinna þegar hún var 15 mán.

Litli stubbur var líka að flíta sér pínu en nú var ég viðbúin og var hætt að vinna en hann fæddist á viku 39 þá var ég búin að vera heima í 2 vikur minnig mig.  Hann er núna 15 mánaða.

Samtals gerir þetta þá 3 ár og 5 mánuði sem ég hef verið heima í færingarrolofi ;)  

Fínt að fara að vinna og í skóla á þessum tímapukti.  Ég er líka komin í hóp sem ætlar í hópeinkaþjálfun 2x í viku í 6 vikur og byrjar það 8. sept þannig að það verður sko nóg að gera.  Búin að reyna að koma matarmálum á rétt ról, gengur ferkar hægt, betur með hverjum deginum hehe ;)   ég er alveg að vigta alla skammta á matmálstímum en hef verið löt að skrá niður og halda utan um daginn og svo hefur verið pínu um svindl því miður :(    En eins og spekingurinn sagði ”einn dag í einu” þá kemur þetta.

Gerður

Posted by: Gerður | ágúst 20, 2008

KANADAKÍLÓIN

Dröslaði mér í vigtun.  Hef ekki alveg verið DDV stemmd eftir heimkomu en fór samt :) á 3 vikum bætti ég á mig 3,1 kg og það kom mér ekkert á óvart svona miðað við sukkið.  Hef ekki verið eins dugleg og ég ætlaði mér þessa vikuna og t.d. trassað að skrifa niður.  Maður getur alltaf lofað sjálfum sér að bæta sig og ætla ég að skrá allt frá og með morgundeginum.  Síðustu dagar hafa verið smá hlaup því ég hef verið að sækja undirbúiningsnámskeið í HÍ út af náminu og ekki alveg komin í þann gír að skipuleggja mig þannig en batnandi konu er best að lifa hvað annað ;)

Góða nótt

GP

Posted by: Gerður | ágúst 17, 2008

KOMIN AFTUR EFTIR DÁSAMLEGT FRÍ

Jamm þá er fríinu lokið þetta árið.  Áttum alveg hreint frábært frí í Kanada og vorum sko í þvílíkum lúxus hjá systur mannsins míns sem býr í Montréal.  Krakkarir voru í essinu sínu við að leika sér í sólinni við sundlaugina eða í þeim görðum sem við fórum í.  við vorum að vísu ekkert spes heppin með veður, held það hafi ringt e-ð á hverjum degi en það var yfirleytt á kvöldin þó og þá var maður nú alltaf komin í hús :) og sólin var ekkert að skína allan daginn en það var svosem ok því þá þurftum við ekki að hafa áhyggur að því að brenna því þótt ekki væri sól þá var nú alveg rúmlega 20 stiga hiti ;)

Erum búin að nota helgina í að hvíla okkur og venjast tímamismuni og börnin að jafna sig eftir flensu sem þeim tókst að næla sér í síðasta daginn. 

Matarmálin fóru alveg í algjört rugl eins og ég bjóst við.  Ég ákvað að leyfa mér allt sem ég vildi þannig séð en ætlaði að vera með á bak við eyrað að reyna að halda mig við grænmetið og ávextina en svo þegar á hólmin var komið var ég bara of góð við sjálfa mig og sleppti mér soldið.  Ég hafði samt bara gott af því að taka frí frá danska því ég finn að ég er sko meira en tilbúin að takast á við næstu 25 kg sem eftir eru.  Ég held ég hafi bætt á mig samalagt um 6 kg þetta sumarið þannig að það eru um 25 kg eftir en ekki 20 eins og í upphafi sumars.  Þannig er það bara.  Ég er alveg ákveðin í að halda áfram, í DDV næstu vikurnar og taka góðan sprett í honum og sjá hvernig gengur.  Ef ég fer að slaka á eða finn að þetta er ekki að ganga ætla ég að hafa GSA bak við eyrað.  Hef svo sem verið að hugsa um það prógramm lengi en aldrei farið á fund.  Eins er stefnan að byrja aftur í ræktinni eftir LANGT hlé!  Ég tók nefninlega einn rosa góðan vetur áður en ég varð ólétt af þeim yngsta (veturinn 2006) og mætti 5x í viku á morgnanna fyrir vinnu, 3x í morguntíma og 2x til einkaþjálfara.  Núna er búin að flytja stöðina sem ég var í hérna hinum megin við götuna og hefur hún sameinast Laugum en sami kennarinn verður með morguntíman -vona ég því þeir voru geggjaðir!  

Lifið er allt að komst í fastar skorður, matarmálin á sitt plan, vinna hjá kallinum, skóli hjá börnunum og litli stubbur byrjar hjá dagmömmu í lok ág og svo byrjar minn skóli í næstu viku og svo 50% vinna 1. sept. þá er formlega lokið mínu fæðngarorlofi og því hlutverki að vera “bara” heimavinnandi og nú tekur sko ekki minni spennandi en um leið krefjandi tímar.  Get ekki sagt annað en mig hlakki til en með svona pínu hnút í maganum yfir þessu öllu saman :)

GP

Posted by: Gerður | júlí 31, 2008

FARIN Í FRÍIР:)

Bara rétt að kasta kveðju í bloggheimana.  Eftir um sólarhring verð ég í flugvélinni á leið til Kanada með familíuna.  Mikil tilhlökkun og spenningur í gangi.  Matarmál verða sett á hilluna næstu vikurnar enda ekki annað hægt þegar maður er í útlandinu.  Ætla nú samt að reyna að vera dugleg í grænmetinu og ávöxtunum eins og ég get ;)

Hafið það gott og vona að allir eigi góða verslunarmannahelgi.

ADIOS

Gerður ferðalangur

Posted by: Gerður | júlí 23, 2008

VIGTUN Í DAG

Er nokkuð bjartsýn á allavega nokkurhundruðgramma létting í dag :)   Vikan hefur gengið þokkalega vel.  Fór að vísu í bíó á sunnnud á MAMMA MIA sem by the way er alveg geggjuð og freistaðist í popp og sódavatn.  Hef annars reynt að vera duglega að halda mig við prógrammið. 

  Er búin að vera hugsa um hvernig veturinn verður og vona að ég geti haldið mig við að fara í vigtun á þriðjudögum strax eftir vinnu í hádeginu.  Þá er litli kútur enn hjá dagmömmunni og hin í skólanum sínum þannig að þetta verður tími fyrir mig :)  

Skelli inn fréttum í kvöld þegar vigtun er lokið.

Gerður

UPDATE:

Jæja 600g í mínus alveg eins og ég bjóst við, niður er niður :)

Posted by: Gerður | júlí 18, 2008

Vigtun

Sveikst ekki um vigtun þessa vikuna.  Það var að vísu 700g upp (á 2 vikum) enn og aftur en ég vissi það alveg.  Nú er ég búin að vera skemma allt of mikið fyrir mér undanfarið en þetta kemur -góðir hlutir gerast hægt sagði einhver :)   ég ætla samt aldrei að fara í 3ja stafa töluna aftur og stend við það! 

Nóg að gera þessa dagana við að undirbúa utanlandsferð sem er eftir 2 vikur nákvæmlega og svo er ég líka að vinna aðeins sem er fínt tilbreyting ;)   Ætla samt að einbeita mér að því að njóta næstu vikna því í lok ágúst byrjar törnin!  Ég skráði mig á tvö undirbúningsnámskeið fyrir námið og svo er fyrsta lota í Inngangi að sérkennslufræðum í lok ág og það verður gist eina nótt á Laugarvatni takk fyrir!  Sem betur fer er æskuvinkona mín að fara í þetta sama nám og við getum þá verið samfó og gist saman í herbergi, finnst ekkert voðalega spennandi að vera með einhverjum sem maður þekkir ekki.  Svo byrjar litli guttinn hjá dagmömmu í lok ágúst (eða aðlögun byjar alveg 1. sept) og svo er það vinna (að öllum líkindum eftir að ganga endanlega frá) á leikskóla sem sérkennslustjóri í 50% vinnu 1. sept -þá er þessum sælutíma fæðingarorlofs með meiru lokið.  Þá er eins gott að vera búin að koma matarmálunum á gott ról ;)

Farin að njóta sólarinnar.

Gerður 

Posted by: Gerður | júlí 12, 2008

Allt í klessu -þannig séð!

æ já það gengur ekkert of vel að halda mataræðinu 100% þessa dagana.  Ég er þó að passa upp á grænmetið og skammtana svona nokkurn vegin það er aðallega að ég er að fara allt of langt úr fyrir rammann að öðru leyti.  Er bara e-ð löt við að koma mér í gírinn og þegar maður slakar aðeins á þá er eins og slakni allt bara og maður missir pínu stjórn.  Því miður er sjálfsaginn ekki komin lengra en þetta.  Ég meira að segja fór ekki í vigtun meðvitað/ómeðvitað á miðvikudaginn, veit alveg að það er ekkert að gerast.  Er svona að meta stöðuna, eitthvað þarf ég að gera til að missa ekki tökin alveg en veit bara ekki alveg hvað best er að gera.  Mér finnst t.d. mjög erfitt að reyna tala við þær í vigtuninni, þegar ég hef farið er alltaf biðröð og ekki vill maður teppa hana og svo hefur Kristín ekki verið og ég þekki hana best. 

Annars erum við búin að fá nýja tölvu, alveg ógeðslega flotta sko og ég kann örugglega ekki brotabrot af því sem hægt er að gera á þetta tryllitæki :)   Hin bara dó alveg.  Sem betur fer er manninu mínum sköffuð tölva í vinnunni þannig að við þurftum ekki að punga út fyrir einu stk tölvu svona á þessum síðustu og verstu ;)  

Er komin í smá vinnu.  tók að mér vaktir í íbúðakjarna fyrir fatlaða í mánuð.  hef verið að vinna þar áður og líkað vel.  Að vísu eru soldið breyttar aðstæður þarna núna því einn einstaklingur er á spítala.  Hef ég verið að sitja yfir honum þar og þetta er ekki venjulegur spítali sko og hefur þessi tími verið mjög lærdómsríkur!  Get því miður ekki sagt mikið meira þó svo að ég gæri tjáð mig helling um þetta málefni en er að sjálfsögðu bundin þagnarskyldu.

Nú eru tæpar 3 vikur í ferðina okkar.  þegar við vorum að bóka hana í vetur sá ég fram á að ég væri komin það langt í aðhaldinu að ég gæti endurnýjað fataskápinn minn.  Eins og staðan er í dag er það nú ekki alveg en það þýðir lítið að gráta það enda dollarinn svo hár að það er ekkert hagstætt að versla.  Um að gera að sjá björtu hliðarnar á þessu.  Sé fram á að taka næsta vetur í næstu (og síðustu)  20 kílóin það er þó gott að vera komin af stað og eiga ekki 40 eftir eins og fyrir 9 mánuðum síðan. 

Jæja vakt í dag þannig að það er eins gott að fara undirbúa sig undir það. 

Gerður

Posted by: Gerður | júlí 3, 2008

Vigtun og tölvuvesen

Haldið þið ekki bara að tölvan okkar sé orðin “lasin” eða þannig!  Skjárinn bara fór í verkfall þannig að hún er á “spítalanum” í lækningu.  Pabbi var svo góður að lána okkur fartölvuna sína á meðan (þau eiga sko eina venjulega líka :) )  Ekki getur maður verið tölvulaus lengi og við vitum ekki hvað það tekur langan tíma að fá hina í lag.  En að öðru.

Skellti mér í Garðabæinn í gær eftir tveggja vikna frí.  Ég var alls ekki bjartsýn því ég stalst á vigtina heima á mánudaginn og var eiginlega í sjokki eftir það því skv henni hafði ég þyngst um allavega 4 kg!  Mamma hughreysti mig með því að þetta væri ekkert að marka þar sem vöðvar væru enn stirðir eftir göngurnar og vökvasöfnun sem ég fann nú vel fyrir.  Kílóin duttu þó svona eitt af öðru (gat ekki haldið mig frá vigtinni og steig á hana á þri og mið morgun).  Svo kom að því að stíga á hina einu og sönnu og þar kom í ljós 1,9 kíló í plús.  Miðað við sukkið þá er þetta alveg eðlilegt held ég.  Nú er rétt tæpur mánuður í að við förum út og stefni ég að því að vera á beinu brautinni þangað til.  Ætla að leyfa mér e-ð úti allavega ís og kannski smá léttvín í hitanum en er alveg búin að sjá að ef ég byrja á nammi og sætabrauði er voðinn vís :(   reyni því að koma kollinum í skilning um að það er e-ð sem bara á ekki heima á mínum matseðli til frambúðar og held að það sé bara gott að hugsa “einn dag í einu” í þeim efnum ;)  

Jæja litli stubburinn er búin að rústa herbergi stóru systur sem verður ekki ánægð þannig að það er eins gott að fara taka til hendinni ;)

Gerður

Posted by: Gerður | júní 30, 2008

KOMIN HEIM-GENGIN UPP AÐ HNJÁM :)

Þá erum við komin heim eftir 5 daga reisu um norðurandið.  Mesti tíminn fór eiginlega í að keyra því það er ansi langt á Langanesið og við keyrðum heim í einum rykk svo að segja í gær og á ferðinni frá því um kl 13 og komum hér heim í Mosó kl 22:30.

Ættarmótið var alveg geggjað!  Tvær MJÖG erfiðar og langar göngur allavega fyrir mig sem er í núll formi :)   Að vísu voru jeppar með í fyrri göngunni sem var allt í allt 20 km.  Gengið var á Fagaranesið. Þegar gangan var hálfnuð var ég komin með svo slæma blöðru á annan hælinn að ég endaði á að hossast með í einum jeppanum var nú ferkar svekkt þar sem ég ætlaði mér svo sannarlega að ganga alla leiðina en svona er þetta bara.   Veðrið var yndislegt en mikið voru nú lappirnar þreyttar eftir daginn.  Ég hafið ekki mikla trú að að geta stigið fram úr rúmi daginn eftir.  EN viti menn ég vaknaði svona líka spræk og komin með góða second skin plástra á hælana og fær í allt.  Í gönguna fór ég og það má segja að hún hafi verið andstaðan við daginn áður.  Gengið var Heiðarfjall-Hrollaugstaðir-Skálar.  Að vísu var keyrt upp á Heiðarfjall en hitt gengið, 12,5 km.

Heiðrið var fVeðrið var ferkar glatað, rigning og rok og 12,5 km upp og niður, upp og niður.  Manni fannst eins og þetta  ætlaði aldrei að taka enda, og eftir að hafa arkað og arkað með hausinn í vindinn og rennandi blaut yst sem innst var  komið á áfangastað og úff hvað maður var fegin :)    Ég var nú alveg hissa hvað ég gat en stoltust var ég nú af syni mínum sem gekk báðar göngur eins og herforingi og var alltaf á undan mér hehe ;)   Hann naut sín í botn alla dagana bæði við að leika við frændfólk, að ganga og síðast en ekki síst með 100% atygli mömmu og ömmu :)

Hvað m        Hvað mataræðið snetrir fór það allt í klessu.  Endaði þetta sem svona ferkar mikið sukk bæði í nammi og og bara mat almennt en nú er mánudagur og matardagbókin komin upp á ískápinn og byrjuð að fylla út samviskusamlega :)  

Læt hér eins Læt góða mynd fylgja

Gerður

                         Gerður  göngugarpur

 

Mataræðirð

 

ég

É

« Newer Posts - Older Posts »

Flokkar