Ákvað að endurvekja sjálfa mig í bloggheimum á nýju ári, ég er sem sagt upprisin
Hef bara haft svo mikið að gera undanfarna mánuði að bloggið fékk að sitja á hankanum í þetta sinn. Síðastliðið ár var svo sannarlega viðburðaríkt og skemmtilegt svo ekki sé meira sagt en einnig urðu ákveðnir hlutir þess valdandi að seinni hluti þess tók verulega á og á tímabili hélt ég hreinlega að ég væri að sligast undan álagi. EN hér er ég, lifði nóv og des af og tókst að klára skólann með ágætis sóma þó svo ég segi sjálf frá, ætla áð vísu aðeins að kvabba á kennaranum mínum varðandi ritgerðina
Við fórum líka fjölskyldann í geggjað ferð til Kanada með foreldrum mínum að heimsækja svila og mágkonu mína og var þessi ferð ógleymanleg í alla staði. Ferðuðumst aðeins um og skoðuðum ýmislegt og börnin fengu að upplifa hluti sem þau hafa ekki upplifð áður. Eins gott að þessi ferð var farin á þessum tímapunkti því ekki værum við að fara næsta sumar það er alveg ljóst!
Árið fór vel af stað matarlega séð og var ég mjög dugleg að halda mig við prógrammið fram á vor. Þá kom sumar og kæruleysið fór að segja til sín með hápuktinum núna yfir jólin! Jamm missti bara alveg tökin á öllu og er búin að bæta örugglega slatta á mig -þori ekki á vigtina. EN ég ætla nú ekki að gefast upp og ætla ða byrja aftur núna á nýju ári og þá eiginlega bara frá núllpunkti. Held að það sé lang best að dvelja ekki lengi við það sem maður er búin að “skemma” fyrir sjálfum sér heldur bara horfa í framrúðuna en ekki baksýnisspegilinn eins og þeir sögðu svo skemmtilega frá í skaupinu
Ræktin byrjar aftur á mánudaginn kl 06 og þá verður vigtað og mælt í DDV stíl og árið 2009 verður svo sannarlegt mitt ár hvað þetta varðar.
Gleðilegt ár.
Gaman að heyra í þér.
Kveðjur að norðan frá gömlum svepp.
By: Gamli sveppur on janúar 1, 2009
at 4:46 pm
Gleðilegt ár
Gaman að lesa blogg frá þér aftur!
By: Hérinn on janúar 4, 2009
at 12:36 pm
Gleðilegt ár og gangi þér ofsa vel á nýju ári.
By: Léttfimmtug on janúar 4, 2009
at 7:27 pm