Sko mína niður um 400g þessa vikuna. Hef að vísu ekki farið í vigtun í 2 vikur en steig á vigt hér heima fyrir viku og þá var ég ekkert voða glöð þannig að nú er ég sátt. Þurfti líka svo á því að halda að fá létting þó hann hafi ekki verið meira en þetta
Held að það sem er að bjarga mér þessa dagana er ræktin. Mæti þangað 3x í viku og svo er ég mikið á labbinu hér í kring, til dagmömmunnar og í vinnunna/leikskólann þannig að þó það sé kannski ekki gífurlega mikið þá er það samt e-ð.
Fór í smá búðarleiðangur því mig vantar eiginlega gallabuxur en uppskar EKKERT! Var eignlega í sjokki yfir verðinu á gallabuxum í búðum eins og Belladonna og RITA, venjulegar buxur ekki einu sinni neitt “fansí” á 10-12 þúsund kall! Nei buddann mín leyfir ekki slíkan munað. Í Zikk Zakk var ekkert sem hentaði þannig að ætli maður verði ekki að láta þetta bíða þar til eru farin svona 5-7 kg þá er þetta auðveldara
Eins gott að standa sig fram að jólum eins og ég var búin að lofa mér, á svo fínan kjól sem ég fékk mér í sumar sem verður of lítill ef ég fer ekki að taka mig á
Hæ sæta skvís! Ég kíki reglulega á þig og vonandi gengur þér vel í öllu sem þú ert með á þinni könnu
Langaði bara að hvetja þig áfram! Ert ekkert smá dugleg! Sjáumst svo hress í des! Knús
By: Lára on desember 2, 2008
at 11:43 pm