Já held ég þurfi að fara endurskoða ýmsa hluti. Er búin að “skrópa” 2x í vigtun, að vísu kannski löglega afsökuð í gær því ég var á fundi í vinnunni og komst ekki í hádeginu en ég kem mér ekki í að fara þá bara á öðrum tíma. Held samt að ég verið e-ð að fara endurskoða þennan tíma því stundum kemst ég ekki á mínútunni 12 úr vinnu og ef ég geri það ekki næ ég þessu ekki. Hef líka verið löt við að halda mér við matarplanið þó svo að ég finni mikin mun á mér þegar ég er á rétta rólinu. Það reynist mér stundum erfitt að skipuleggja mig og hugsa fram í tímann t.d. með hádegismatinn en ég reyni að taka mið af því hvað er í matinn í vinnunni. Ég get t.d. alltaf boðað á mánudögum því ´þá er soðinn fiskur og grænmeti og nóg af því
Það er alltaf grænmeti með matnum en ég þarf samt alltaf að passa mig að borða ekki bara kál heldur bæta við tómötum og fl sem er þyngra.
Jákvæði pukturinn í þessu öllu saman er að ég er dugleg að mæta í ræktina og geri það 3x í viku kl 6 á morgnanna og líka á föstudögum þó svo að ég sé ekki að fara að vinna þá daga. Ég hef stundum hugsað æ ég sleppi bara föst og fer um helgina en svo bara finnst mér svo gott að fara í þessa tíma að ég tími ekki að sleppa þeim
orðin “húkkt” eins og kallinn minn sagði.
Jæja best að fara gæða sér á gulrótarsúpunni góðu.
Góða helgi.
Já, það getur verið erfitt að koma sér í gírinn aftur, en mér sýnist þú vera að höndla þetta ágætlega.
Ég segi bara gangi þér áfram vel!
By: Dídí on nóvember 5, 2008
at 12:52 pm