Já já ég er hérna. Hef bara allt of mikið að gera þessa dagana hehe. Skellti mér í vigtun í gær (fór ekki í síðustu viku) og hafði bætt á mig rúmu kílói en ég vissi það
Held bara áfram mínu striki eins og alltaf. Er bara að drukna í faglegum lestri, verkefnavinnu og svo auðvitað vinna og familí.
Ætla að enda á að segja ykkur frá skemmtilegri reynslu í síðustu viku. Ég hitti nefninlega fyrrum samstarfskonu mína á ráðstefnu sem ég hef ekki hitt ansi lengi (ca. 2 ár). En það sem var ótrúlegt var að ég þekkti bara konuna varla fyrr en hún fór að tala!!!! Hún er sem sagt búin að vera að léttast með hjálp GSA og maður minn þetta er bara gjörbreytt manneskja. Maður hefur meira verið að fylgjast með fólki léttast og hitt það á “nokurra kg fresti” en ég hef aldrei upplifað það að hitta manneskju 40 kg síðar. Þetta kannski styrkti mig enn ferkar í þessari aukakílóavinnu minni, allaveg fékk mig til að hugsa mikið. Eins minnti einkaþjálfarinn minn yndislegi á það þegar við vorum að ræða saman einmitt á kjarna málsins kannski, hversu mikið vill maður léttast???
Stórt er spurt
Góða helgi.
Gott að heyra af þér og gangi þér vel í lífstílnum og náminu. Held að það sé gott fyrir alla, sérstaklega konur, að láta drauma sína rætast og líka að ná því að þroskast í starfi.
Kveðjur frá gömlum svepp.
By: Gamli sveppur on október 18, 2008
at 11:37 am
Heyrðu, ég er ennþá að reyna að kikkstarta mér, er ekki búin að finna hvað virkar best til að ná mér af stað…
Gangi þér vel skvís.
By: Dídí on október 21, 2008
at 11:03 pm