Já dagarnir eru farnir að vera ansi pakkaðir núna. Síðasta vika var sérstaklega slæm, fundir 3 kvöld, vinna 1 kvöld og svo fullt að gera í skólanum, barnaafmæli um helgina (stóri strákurinn minn verður 8 ára á 2. okt) og í til viðbótar við þetta allt fékk ég hrikalega magapest! Eitthvað verður að gefa undan þegar er svona mikið í gangi hjá manni. Að þeim sökum fór allt matarplan út um gluggann og ég gat ekki borðað rétt né allt sem skipulagið segir til um. Fór ekki í vigtunina á fimmutudaginn því ég hreinelga bara lá í bælinu á milli þess sem ég sat á WC -ekki spennandi. En nú er ný vika og ég búin að jafna mig en þá taka börnin við! er heima með þann yngsta sem er með hita og barkabólgu litla greyið. Er komin á rólið með matinn að mestu, það tekur smá tíma að jafna sig eftir svona og ég fann svo sannarlega fyrir því í ræktinni í gærmorgun!
Læt þetta duga núna, vonandi kemur léttingur á fimmtudaginn
Úff magapestir eru svo ógeðslegar! Þetta er einmitt að ganga hérna líka – eins gott að ég fái þetta ekki, 7-9-13!
By: Keppurinn on september 30, 2008
at 10:51 am
Gott að þér er farið að batna. Til hamingju með stráksa þann 2. okt
By: lettfimmtug on september 30, 2008
at 12:08 pm
Takk takk
By: Gerður on september 30, 2008
at 12:17 pm
Úff, magapestir eru óþolandi!
Gangi þér vel í vikunni
By: Hérinn on september 30, 2008
at 12:43 pm
Öss vona að ég sleppi við magapest! Gangi þér vel.
By: Dídí on september 30, 2008
at 11:02 pm