Úff átti nú í erfiðleikum með að komast inn á bloggið í morggun netið e-ð að strýða mér. Ég var svo skynsöm að c/p þessu á word því það saveaðist ekkert í morgun en vonandi er það komið í lag núna
Fauk inn í vigtun í gær (það var sko hífandi rok!) og var 500g léttari en fyrir viku. Nokkuð sátt því það er tölverð breyting að byrja að æfa. Er annars búin að vera dugleg í þeim pakkanum, að vísu fer ég “bara” 3x í viku en ég held að það borgi sig að byrja svona og svo kannski bæta við einni brennsluæfingu um helgi eftir nokkrar vikur.
Sit annars hér heima í rokinu, allir -eða margir vöðvar titra af þreytu eftir átökin í morgun, hörku púl í lóðatíma. Búin að borða morgunmatinn minn sem samanstóð af léttri ab mjólk og epli, og svo ristað brauð með osti og sultu sem telst ekki lengur sem extra og ég er ekkert smá hamingjusöm með það
að vísu má bara 3 tsk á dag en það er sko meira en nóg fyrir mig.
verð að deila með ykkur sjónvarpsþætti sem ég datt inn í í gærkvöldi á einhverri rásinni á fjölvarpinu. Heitið á honum var “The 280 kg woman” og fjallaði sem sagt um konu sem var orðin þetta þung og guð minn góður manni leið illa að horfa á aumingja konuna sem gat varla hreyft sig fyrir spiki og hvað þá gengið. Hún fór í hjáveituaðgerð og þvílíkt og annað eins sem hún mátti þola eftir aðgerðina. Sökum þyngdar er miklu meiri hætta á ýmiskonar “complicatoins” og hún fékk vænan pakka af því. Sem dæmi kom mikið sýking í skurðinn sem var orðin bara opið gat á maganum á henni, hún gat ekki nærst og þjáðist af vannæringu (ótrúlegt fyrir mannesku sem er svona stór og mikil) og það gerði það að verkum að batinn var lengur að koma. Hún dvaldi meira og minna á spítala fyrstu 6 mán eftir aðgerð en að lokum tókst henni að fara heim 100 kg léttari!!!! Þá var hún farin að gera gengið með göngugrind, hún leit mun betur út og var farin að vera bjartsýnari á lífið og tilveruna. Þannig endaði þátturinn og því miður hefur maður ekki hugmynd um hvernig hún hefur það í dag. Á tímabili var hún hreinlega að deyja. SVO ER MAÐUR AÐ KVARTA YFIR 20 – 30 AUKAKÍLÓUM. Hætt því snarlega!
Jæja lærdómsbækurnar brosa til mín hérna
EIGIÐ GÓÐA HELGI Í ROKI OG RIGNINGU.
Úff já, ég held maður ætti ekki að vera að kvarta yfir aukakílóunum miðað við þetta!!
500 niður er nú bara flott
By: Hérinn on september 19, 2008
at 5:01 pm
Sæl, ég hef aðeins verið að fylgjast með blogginu þínu. Er sjálf nýbyrjuð á DDV og farin að skoða átaksbloggin =o) Það hjálpar allt.
Gangi þér vel =o)
By: Keppurinn on september 23, 2008
at 9:22 am
500 grömm er nú bara flott.
By: Dídí on september 25, 2008
at 10:30 am