100g fóru þessa vikuna! Ekki var það nú mikið en ýmsar ástæður fyrir því kannski. Ég var til dæmis að byrja í ræktinni á mánudaginn eftir 2ja ára hlé! Vá hvað tíminn líður. Er s.s. komin í flottan hóp þriggja annarra kvenna sem mætir 2x í viku kl 06 (AÐ MORGNI) í ræktina og þar er frábært þjálfari sem púlar okkur áfram. Rosa gott start til að koma manni af stað. Fór svo í morgun í morguntímann sem ég var allaf í hér um árið. Það er svo fyndið hvað þetta er allt sama fólkið, uppbygging á tímanum svipuð, sami frábæri kennarinn og það liggur við að fólk sé á sama stað í salnum og fyrir 2 árum! Bara fyndið. Ég er s.s. að drepast úr harðsperrum eftir þessa tíma þannig að vigtin er kannski ekki alveg raunhæf. Ég finn samt á mér að það er breyting þó svo að ég sé bara búin að fara í þrjá tíma!
Jæja ætlaði bara að láta vita af mér, brjálað að gera auðvitað og sit ég núna heima að lesa, vinn sko ekki á föstudögum svo ég geti sinnt náminu í friði
Best að snúa sér að skruddunum.
Góða helgi!
Harðsperrurnar telja sko alveg á vigtinni – hef orðið verulega vör við það
Ætla að snúa mér að skruddunum þér til samlætis.
By: Hérinn on september 12, 2008
at 12:22 pm
djö… dugnaður í þér kona að fara kl. 06 á morgnana í ræktina. Ég held að þú sért pínu ofurkona m. 3 börn, mann, vinnu og nám. Síðan bætir þú inn í þitt líf breyttum lífsstíl sem tekur á, það vitum við báðar. Ég hef fulla trú á þér og taktu þetta á hæga hraðanum, það helst betur frá þannig þ.e. þyngdin
By: lettfimmtug on september 14, 2008
at 9:58 am
gott með þig kona *öfund*
ég sit hér og horfi á crosstrainerinn sem að ég fékk í brúðargjöf en fæ engar harðsperrur… held að ég sé að gera eitthvað vitlaust
By: Heiða on september 15, 2008
at 4:24 pm
Já harðsperrurnar þyngja, það er víst alveg rétt.
Gangi þér vel!
By: Dídí on september 18, 2008
at 10:35 pm
Jæja, hvernig gengur í ræktinni og lestrinum og öllu saman?
By: Hérinn on september 19, 2008
at 12:54 pm