Posted by: Gerður | september 6, 2008

Mikið að gera!

Já það má nú segja það að nú er mikið að gera.  Hamast við að samræma skóla, vinnu og fjölskylduna og þetta er allt að koma ;)

Fyrsta vinnuvikan búin og líst mér rosa vel á!  Tekur samt alltaf tíma að koma inn á nýjan vinnustað en ég hef ekki upplifað slíkt síðan 2002!  Svo er skil á verkefni í skólanum annað kvöld þannig að helgin fer í að vinna það og klára lestur fyrir það.  Verð víst að æfa mig í því að velja og hafna :(   er boðið í afmæli á morgun sem ég sé fram á að komast ekki í því miður en svona er þetta bara.

verð nú að deila með ykkur góðri kvöldstund sem ég átti í vikunni með ydislegum konum.  Þar var mikið spjallað og önnur þeirra spáir í bolla og auðvitað var spáð.  Fékk þessa fínu spá sem ég ætla nú samt ekkert að fara nákvæmlega út í það -þá ræstist hún ekki- en get ekki sagt annað að það séu spennandi tímar framundan og þú spákona -þú ert nokkuð góð því þú sást hluti þarna sem eru sko alveg réttir -TAKK FYRIR SPÁNA léttfimmtug :) og daman á fyrstu hæðinni takk fyrir kaffið :)

Jæja þá eru það matarmálin.  Nú er ég búin að færa mig yfir á fimmtudaga í Grensáskirkju.  Bætti að vísu 500g á mig en það á sér skýringar í Rósu blessuninni.  Fór á fund sem ég hef ekki gert síðan í vor en finn að það er nauðsynlegt að mæta á þá!  er meira að segja búin að hliðra þannig til vinnunni að ég er búin kl 12 á fimmtud og fer þá beit.

Jæja best að koma sér í lesturinn góða helgi!


Responses

  1. Það getur verið maus að samræma þetta allt og láta passa inn í mataræði etc. Við virðumst nokkrar vera að glíma við það þessa dagana. :) Nú hlýtur þetta samt að fara að koma hjá okkur öllum!

    Áfram við!

  2. Þú ert það ung að þér tekst þetta, skipulagðri konunni. Þær leynast víða ofurkonurnar. Mundu bara samt að setja þig í fyrsta sæti, því þá njóta allir ávaxtanna :-) Ég spái því með vorinu að tvær grannar konur, ein eldri, hin ung sitji yfir heitum kaffibolla og rýna í korkinn.


Leave a response

Your response:

Flokkar