Vigtun dagsins kom mér verulega og skemmtilega á óvart. Niður um 1,2 kg! Ég hef nefninlega alls ekki verið 100% þessa vikuna en passað upp á skammta og verið að borða besta og ferskasta grænmeti sem fæst norðan Alpafjalla! Mæli með að allir fái sér bíltúr að Reykjum hér í Mosó því þar er æðislegur grænmetismarkaður
Nú sit ég heit að innan og utan eftir stelpurferð í Laugardagslaugina (suðum okkur í pottunum -ekkert synt í þetta sinn en meira kjaftað) nýbúin að gæða mér á PING pinna sæl og glöð á leið í skólann í fyrramálið.
Góða nótt
Gerður
Æði, skemmtilegt að fá svona “surprise”
Fór einmitt á grænmetismarkaðinn um daginn – geggjað!!
By: Hérinn on ágúst 27, 2008
at 11:33 pm
Gratulera
By: lettfimmtug on ágúst 28, 2008
at 9:40 am
Flottur léttingur
By: Heiða on ágúst 30, 2008
at 3:32 pm