Posted by: Gerður | ágúst 26, 2008

Síðasta vikan mín sem heimavinnandi húsmóðir!

Þá er hún hafin síðasta vikan mín sem “bara” heimavinnandi.  Soldið skrýtin tilfinning en alls ekki vond :)   Þar sem ekki er stefnt á fleiri börn þá á ég ekki eftir að taka fleiri fæðingarorlof.  Hef verið heima með öllu börnunum í a.m.k. ár þannig að samanlagt er þetta svona:

Sá stóri hætti að vinna 1 sept en beið í 1 mán þar til honum þóknaðist að koma.  Fór svo að vinna þegar hann var 11 mán.

Skvísan var að flýta sér í heiminn og fæddist 1 degi eftir að ég hætti að vinna á viku 38. Fór svo að vinna þegar hún var 15 mán.

Litli stubbur var líka að flíta sér pínu en nú var ég viðbúin og var hætt að vinna en hann fæddist á viku 39 þá var ég búin að vera heima í 2 vikur minnig mig.  Hann er núna 15 mánaða.

Samtals gerir þetta þá 3 ár og 5 mánuði sem ég hef verið heima í færingarrolofi ;)  

Fínt að fara að vinna og í skóla á þessum tímapukti.  Ég er líka komin í hóp sem ætlar í hópeinkaþjálfun 2x í viku í 6 vikur og byrjar það 8. sept þannig að það verður sko nóg að gera.  Búin að reyna að koma matarmálum á rétt ról, gengur ferkar hægt, betur með hverjum deginum hehe ;)   ég er alveg að vigta alla skammta á matmálstímum en hef verið löt að skrá niður og halda utan um daginn og svo hefur verið pínu um svindl því miður :(    En eins og spekingurinn sagði ”einn dag í einu” þá kemur þetta.

Gerður


Leave a response

Your response:

Flokkar