Posted by: Gerður | ágúst 17, 2008

KOMIN AFTUR EFTIR DÁSAMLEGT FRÍ

Jamm þá er fríinu lokið þetta árið.  Áttum alveg hreint frábært frí í Kanada og vorum sko í þvílíkum lúxus hjá systur mannsins míns sem býr í Montréal.  Krakkarir voru í essinu sínu við að leika sér í sólinni við sundlaugina eða í þeim görðum sem við fórum í.  við vorum að vísu ekkert spes heppin með veður, held það hafi ringt e-ð á hverjum degi en það var yfirleytt á kvöldin þó og þá var maður nú alltaf komin í hús :) og sólin var ekkert að skína allan daginn en það var svosem ok því þá þurftum við ekki að hafa áhyggur að því að brenna því þótt ekki væri sól þá var nú alveg rúmlega 20 stiga hiti ;)

Erum búin að nota helgina í að hvíla okkur og venjast tímamismuni og börnin að jafna sig eftir flensu sem þeim tókst að næla sér í síðasta daginn. 

Matarmálin fóru alveg í algjört rugl eins og ég bjóst við.  Ég ákvað að leyfa mér allt sem ég vildi þannig séð en ætlaði að vera með á bak við eyrað að reyna að halda mig við grænmetið og ávextina en svo þegar á hólmin var komið var ég bara of góð við sjálfa mig og sleppti mér soldið.  Ég hafði samt bara gott af því að taka frí frá danska því ég finn að ég er sko meira en tilbúin að takast á við næstu 25 kg sem eftir eru.  Ég held ég hafi bætt á mig samalagt um 6 kg þetta sumarið þannig að það eru um 25 kg eftir en ekki 20 eins og í upphafi sumars.  Þannig er það bara.  Ég er alveg ákveðin í að halda áfram, í DDV næstu vikurnar og taka góðan sprett í honum og sjá hvernig gengur.  Ef ég fer að slaka á eða finn að þetta er ekki að ganga ætla ég að hafa GSA bak við eyrað.  Hef svo sem verið að hugsa um það prógramm lengi en aldrei farið á fund.  Eins er stefnan að byrja aftur í ræktinni eftir LANGT hlé!  Ég tók nefninlega einn rosa góðan vetur áður en ég varð ólétt af þeim yngsta (veturinn 2006) og mætti 5x í viku á morgnanna fyrir vinnu, 3x í morguntíma og 2x til einkaþjálfara.  Núna er búin að flytja stöðina sem ég var í hérna hinum megin við götuna og hefur hún sameinast Laugum en sami kennarinn verður með morguntíman -vona ég því þeir voru geggjaðir!  

Lifið er allt að komst í fastar skorður, matarmálin á sitt plan, vinna hjá kallinum, skóli hjá börnunum og litli stubbur byrjar hjá dagmömmu í lok ág og svo byrjar minn skóli í næstu viku og svo 50% vinna 1. sept. þá er formlega lokið mínu fæðngarorlofi og því hlutverki að vera “bara” heimavinnandi og nú tekur sko ekki minni spennandi en um leið krefjandi tímar.  Get ekki sagt annað en mig hlakki til en með svona pínu hnút í maganum yfir þessu öllu saman :)

GP


Responses

  1. Gangi þér vel. Þetta reddast allt :-)

  2. Velkomin heim úr fríinu :) Nóg framundan bara… en það er nú oft þannig að manni gengur bara betur þegar nóg er að gera. Þá skipuleggur maður sig svo vel.


Leave a response

Your response:

Flokkar