Þá erum við komin heim eftir 5 daga reisu um norðurandið. Mesti tíminn fór eiginlega í að keyra því það er ansi langt á Langanesið og við keyrðum heim í einum rykk svo að segja í gær og á ferðinni frá því um kl 13 og komum hér heim í Mosó kl 22:30.
Ættarmótið var alveg geggjað! Tvær MJÖG erfiðar og langar göngur allavega fyrir mig sem er í núll formi
Að vísu voru jeppar með í fyrri göngunni sem var allt í allt 20 km. Gengið var á Fagaranesið. Þegar gangan var hálfnuð var ég komin með svo slæma blöðru á annan hælinn að ég endaði á að hossast með í einum jeppanum var nú ferkar svekkt þar sem ég ætlaði mér svo sannarlega að ganga alla leiðina en svona er þetta bara. Veðrið var yndislegt en mikið voru nú lappirnar þreyttar eftir daginn. Ég hafið ekki mikla trú að að geta stigið fram úr rúmi daginn eftir. EN viti menn ég vaknaði svona líka spræk og komin með góða second skin plástra á hælana og fær í allt. Í gönguna fór ég og það má segja að hún hafi verið andstaðan við daginn áður. Gengið var Heiðarfjall-Hrollaugstaðir-Skálar. Að vísu var keyrt upp á Heiðarfjall en hitt gengið, 12,5 km.
Heiðrið var fVeðrið var ferkar glatað, rigning og rok og 12,5 km upp og niður, upp og niður. Manni fannst eins og þetta ætlaði aldrei að taka enda, og eftir að hafa arkað og arkað með hausinn í vindinn og rennandi blaut yst sem innst var komið á áfangastað og úff hvað maður var fegin
Ég var nú alveg hissa hvað ég gat en stoltust var ég nú af syni mínum sem gekk báðar göngur eins og herforingi og var alltaf á undan mér hehe
Hann naut sín í botn alla dagana bæði við að leika við frændfólk, að ganga og síðast en ekki síst með 100% atygli mömmu og ömmu
Hvað m Hvað mataræðið snetrir fór það allt í klessu. Endaði þetta sem svona ferkar mikið sukk bæði í nammi og og bara mat almennt en nú er mánudagur og matardagbókin komin upp á ískápinn og byrjuð að fylla út samviskusamlega
Læt hér eins Læt góða mynd fylgja
Gerður göngugarpur
Mataræðirð
ég
É

Útivistin og göngurnar eru æðislegar. Um að gera að njóta lífsins einn dag í einu. Þú ert geggjuð
By: lettfimmtug on júní 30, 2008
at 10:27 am