Posted by: Gerður | júní 24, 2008

Styttist í ættarmótargöngurnar

Legg í ‘ann í fyrramálið og framundan keyrsla til Húsavíkur (eða þar rétt hjá) gist eina nótt og svo haldið á Langanesið.  Skv. dagskránni er allavega ein erfið ganga á fimmtudag þannig að þá býst ég við að vera með ekki mjög DDV legt nesti (takk fyrir ábendingar mð nesti þið sem commentuð á síðustu færslu).  Ætla að reyna einmitt að vera með þurrkaða ávexti og jafnvel luma einum og einum suðusúkkulaðimola með -gefur svo góða orku :)  

Annars datt mín aðeins í nammið í gær, er enn að glíma við nartþörfina á kvöldin :(   Æ þetta er bara eilífðarbáttátt sennilega!

Jæja verð að rjúka, á vona á vinkonum í morgunkaffi og svona.

GP göngugarpur


Responses

  1. Rosalega finnst mér þetta sniðugt form á ættarmóti hjá ykkur :)
    Góða ferð og góða skemmtun!


Leave a response

Your response:

Flokkar