Posted by: Gerður | júní 20, 2008

NORÐURLANDIÐ

Þá erum við komin heim eftir viku dvöl í sumarbústað fyrir norðan.  Ágætis ferð þannig séð nema að veðrið mátti alveg vera betra.  Fyrir utan fínan dag á laugardegi (og svo fös sem fór í að keyra) var bara skítakuldi og rigning! :( ferlega fúlt.  Matarlega gekk vel til að byrja með en svo fór mín að verða kærulaus, smá nammi hér, BRYNJUÍS þar og smá kleiunubiti og vöfflur hjá frænku.  Úff það er svo sannarlega erfitt að halda sig við svona prógramm þegar maður er ekki heima.  Ég var að vísu fyrirhyggjusöm og var búin að gera nokkra  gulrótarsúpu skammta og passaði alltaf upp á að fá minn grænmetisskamt og morgunmatinn minn sem er oftast eins (AB mjólk, epli og brauð með osti og kaffi) en þetta helv. nammi og sætabrauð sem virðist ómissandi í svona ferðum fór alveg með mig!  Afleiðingin, jú pirringur í hausnum mínum (ógurlega ósátt við að geta ekki hamið mig og sagt nei) og pirringur út í alla í kring um mig sem fylgjast með og börnin sem segja allt í einu “mamma ertu hætt að mæla þetta” ohh þau eru ótrúlega eftirtektasöm þessi blessuðu börn. 

En í dag er dagur eitt í núllstillingu og so far so good.  Er að vísu að glíma við nartþörfina en þetta hýtur  að koma.  Er ein með þau yngri alla helgina því stóri strákurinn er á fórboltamóti með pabba sínum þannig að þá gefst ágætis tími (svona eftir kl. 21 á kvöldin) til að hugsa aðeins og endurmeta stöðuna. 

Á miðvikudaginn verður aftur lagt í ‘ ann.  Þá fer ég með stóra stráknum mínum á ættarmót í minni fjölskyldu alla leið á Langanesið takk fyrir.  Ég á nefninlega ótrúlega fjölskyldu mömmu megin ( hún átti sko 6 systkini sem eiga 2-6 börn) sem hittist á hverju ári að sumri frá fimmtudegi til sunnudags og gengur.  Það eru sem sagt skipulagðar gönguferðir -mis erfiðar út um allt land og höfum við t.d. verið í Borgarfirði, Öxarfirði, Austurlandi og svo var genginn Laugarvegurinn fyrsta árið.  Þarna verður sem sagt ekki mikið sukkað í mat heldur brennt (vonandi) sumarbústaðasyndunum :)    Eitt hef ég þó smá áhyggur af og það er hvernig ég á að skipuleggja nestið mitt.  Maður er svo vanur því að verða með brauð og slíkt í svona göngum en ekki heilu máltíðirnar!  Þetta verður hausverkur helgarinnar að hugsa þetta.  Allar ábendingar vel þegnar blikk blikk ;)

Vegna þessara ferðalega hjá mér sé ég ekki fram á að komast í Garðabæinn í vigtun fyrr en í byrjun júlí þannig að það verður lítið um tölur þangað til en ég ætla nú samt að fylgjast með hér heima.

Over&out

Gerður


Responses

  1. Væri mögulegt fyrir þig að hafa grænm.súpu á hitabrúsa? Svo gætir þú líka verið með ávexti og grænmeti til þess að narta í..

  2. Sveskjur og sardínur.

  3. Ef þetta eru langar (10+ tímar) göngur myndi ég skilja danska eftir heima, í fullri alvöru. Ég fór Fimmvörðuhálsinn þar síðasta sumar og tók með nesti sem passaði við DDV upp á gramm (og tók með eins mikið og ég mögulega gat) og ég var bara komin í blússandi blóðsykursfall og leið mjög illa. Á endanum tróð kærastinn minn snickers ofan í mig til að hressa mig við. Við svona aðstæður er orkuþörfin bara miklu meiri en danski gerir ráð fyrir, þannig að maður þarf að passa sig að vera líka raunveruleiktengdur.

    En ef þetta eru skemmri göngur myndi ég taka með þurrkaða ávexti (mikil orka í þeim), það brauð sem þú mátt, salat með kjúkling, egg o.s.frv.


Leave a response

Your response:

Flokkar