Posted by: Gerður | júní 3, 2008

Vigtunin sem ég ætlaði ekki í.

Já ég var bara búin að selja sjálfri mér það að sleppa því að mæta þessa vikuna.  Búin að vera voða dugleg að vigta og mæla þá sem á að borða en svo hefur bara verið slatti sem á alls ekki heima í dagbókinni sem ratað hefur vitlaus leið þessa vikna.  Auðvitað ekkert skráð :(   En það sem er að trufla mig aðallega núna er súkkulaði sem var til hérna um helgina og næstum bara hvarf oní mig!  og svo hef ég slakað á brauðinu og þetta tvennt er víst það sem skemmir hvað mest fyrir manni skv Kristínu.  Átti gott spjall við hana -svo fáir sem mæta í vigtun í góða veðrinu.  Hún kom með nokkuð góðan punt til að fókusa á næstu vikur og ég verð að viðurkenna að ég hafði ekki hugsað hlutina út frá því fyrr.  Sko hún sagði að þegar svona gengur (hef bætt á mig síðustu þrjú skipti) þá er gott að einbeita sér að því að þyngjast ekki heldur halda sér bara í sömu þyngd.  Undanfarna mánuði hefur orkan og fókusinn verið alfarið á að léttast og ekkert annað.  Mér létti nú bara við þessa tilhugsun og VONANDI næ ég að koma mér upp úr þessu núna.  Ætla að halda stífa dagbók og koma með í næstu vigtun og það eitt er gott aðhald ;)

Vigtin sagði sem sagt 700g upp aftur :(

Jæja best að koma sumarblómum í potta sem ég var að kaupa.

Sólskinskveðjur

Gerður


Responses

  1. Hef fulla trú á að þú náir þér á rétt ról! Koma ekki alltaf svona tímabil hjá öllum – þú ert búin að vera rosalega dugleg! Gangi þér vel áfram :)

  2. Halda ótrauð áfram. Tvö skref fram eitt aftur, stundum bara gerist það. Ekki gefast upp.


Leave a response

Your response:

Flokkar