Posted by: Gerður | maí 13, 2008

Ekkis svo góð vika :(

Já þessi vika hefur ekki verið svo góð því miður.  Hef ekki verið dugleg við að skrá samviskusamlega í dagbókina sem gerir það að verkum að maður man ekki hvað var búið og hvað ekki.  Æ maður tekur bara stundum svona letitarnir.  Var svo á fundi frá morgni fram á kvöld á Egilsstöðum á fimmtud og ekki alveg aðstæður til að vera vigta og mæla þegar matur er innifalin.  Það var að vísu fiskur í hádeginu og mín voða glöð þangað til ég leit á diskinn!  Boðið var upp á steikt grænmeti með en það var bara sýnishorn, kannski að magnið hafi náð einni MATSKEIÐ! og fiskurinn ekkert nema bein! ojbjakk fór bara í kaupfélagið og keypti mér poka af baby gulrótum og maulaði það það sem eftir lifði fundar :)   Fengum að vísu dýrindis mat um kvöldið sem bætti þetta nú upp ;)

Kemst ekki í vigun í dag því litli kúturinn er lasin en e-ð segir mér nú að það sé ekki mikil hreyfing þar á.  Er bara staðráðin í því að þessi vika verði mun betri en síðasta og það reynir á þegar maður mætir ekki í vigtun.

Jæja best að fara sinna litla lasna kút

Gerður


Responses

  1. Þú tekur bara þessa viku með stæl og færð flotta tölu í næstu viku :)
    Gangi þér vel.

  2. Svona vikur koma af og til hjá okkur flestum held ég. Þá er bara að taka betur á í næstu viku og standa sig eins og hetja. :) Gangi þér vel!


Leave a response

Your response:

Flokkar