Já já er svo sem ekkert voða ósátt við vigtina svona miðað við aðstæður en það fóru 700g. Stefndi auðvitað á 900g allavega til að ná 20 kílóunum en það kemur pottþétt næst
Fór í morgunkaffi við góðrar vinkonu í gærmorgun við vorum þar nokkrar, höfum haft þá hefð að bjóða í morgunkaffi þegar við eigum afmæli (erum 35 ára kellurnar) og eitt slíkt var sem sagt í gær. Það er svo notó að hittast svona á morgnanna og við komumst allar, sumar eru í fæðingarorlofi, aðrar í vaktavinnu eða heimavinnandi. Það var auðvitað miklar krásir og rosa flott terta sem mín stóðst og vel það! Fékk svo yndislegt sms frá einni þeirra í morgun sem gladdi mitt hjarta verð að deila því með ykkur:
“Elsku Gerður dáist að þrautseigju þinni þú lítur glæsilega út kv “
Gott að eiga góða vini það er alveg ábyggilegt !
Annars mest lítið að frétta, fór í góðan göngutúr í morgun, eiginlega tilneydd því þeir sem þekkja mig vita að ég þarf alltaf að hafa ákveðin stað að stefna að svo ég nenni í göngu. Anyways í morgun hófst menningarvika leikskólanna mér í Mosó og þá eru sett upp listaverk eftir börnin í Kjarnanum og árgangarnir koma saman og syngja fyrir foreldra sína. Skottan var s.s. að syngja með leikskólanum sínum og kúturinn að sofa úti þannig að það var ekkert annað í boði en að arka með vagninn. Þetta er nú ekkert svo langt, ca 25 mín við röska göngu aðra leið þannig að ég var nú bara spræk eftir labbið og rokið
Hefði sko þegið kaffibollann minn þegar ég kom heim en þar sem var vigtun þá fær maður sér ekkert nema morgunmatinn fyrr en eftir hana
Svona getur maður verið kikk
Jæja best að koma sér í smá bæjarferð með gríslingana.
Gerður
Glæsilegt hjá þér
By: Hérinn on apríl 29, 2008
at 3:01 pm
glæsilegt hjá þér Gerður mín
þú ert mér svakalega hvatning í mínu átaki. Og mér gekk líka vel í minni vikulegri vigtun
nú er bara að halda áfram…ekkert annað í stöðunni…þetta er svo gaman! veiiii
By: Lára on apríl 30, 2008
at 2:07 pm
til lukku, nú tekur 20 næst og færð þá stóra tölu og ferð vel yfir 20 en ekki bara smá. Auðveldara að halda því.
MBK heiða
By: Aðalheiður on apríl 30, 2008
at 2:45 pm
Til lukku með þetta.
700 grömm eru sko bara hellingur.
Nærð 20 næst og vel það!
By: Dídí on apríl 30, 2008
at 3:58 pm