jAMM þar fór það 1,1 kg þessa vikuna og er bara nokkuð sátt með það. Jafnar alveg svekkelsið í síðustu viku
Kristín var ekki þannig að ég gat ekki spurt út í brauðið hvort ég á að halda áfram að sleppa einu brauði eða ekki en ætli ég geri það ekki bara þessa vikuna líka, það hefur gengið ágætlega þannig séð.
Enn eru veikindi hér á börnum, litlinn orðið hás og kvefaður og örugglega með ónot í eyrunum þannig að við flíttum tímanum hjá HNE lækninnum og förum á morgun. Vona að rörin séu ekki komin á flakk
Svo tók skottan upp á því að verða veik líka var með háan hita og kvef, svo fékk hún rosalegan eyrnaverk í fyrrinótt. Fórum til læknis sem vildi nú sjá hvort hún myndi ekki vinna á þessu sjálf og viti menn ekkert í nótt 7-9-13!
Jæja ætla að fara gæða mér á túnfisk salati með eggjum og gúmmulaði með bros á vör
Gerður
Frábær tala Gerður!!
Svo ferðu yfir 20 í næstu viku.. flott hjá þér.
Vonandi verður eitthvað lítið meira úr þessum veikindum á börnunum. Segðu þeim að það sé að koma sumar þau megi ekki vera lasinn. hehe
bestu kveðjur til þín
By: Aðalheiður on apríl 22, 2008
at 1:33 pm
Glæsilegt hjá þér!!
By: Hérinn on apríl 22, 2008
at 2:21 pm
Til hamingju með léttinginn – þetta er flott hjá þér…….vona að börnin hressist fljótt
kv. Ása Dóra
By: Ása Dóra on apríl 22, 2008
at 5:06 pm
Flott hjá þér Gerður mín
Þú stendur þig frábærlega! Já og vonandi hressast krakkarnir fljótt svo þú getur farið út að labba með kútinn
knús
By: Lára on apríl 22, 2008
at 6:10 pm
Flott hjá þér skvísan þín! Til lukku með þetta.
Verður gaman að sjá 20 kílóin fara.
By: Dídí on apríl 22, 2008
at 9:44 pm