Posted by: Gerður | mars 17, 2008

Bloggleti eða hvað?

Já það má nú kannski segja það.  Allavega hef ekki haft gífulega tjáningarþörf síðustu daga, engar fréttir eru góðar fréttir er það ekki?? hehe.  Hef nú náð að halda mér svona nokkurnvegin á þeirri beinu, er að reyna að taka mig á í nartinu, það er nebblega svo ótrúlegt hvað maður er fljótur að seilast í e-ð ef það er til.  EN maður verður víst bara að læra að eiga suma hluti inn í skáp en láta þá í friði því ekki er ég ein á heimilinu en mikið djö.. getur það verið erfitt og stundum er bara e-ð komið upp í munn bara allt í einu! eða þannig.

Matarlega hefur gengið svona sæmó, mætti alveg vera duglegri t.d. í fisknum, en gerði nú svolítið í gær sem mér hefið sko ALDREI dottið í hug fyrir DDV lífið en ég sauð mér fisk, kartöflur og rófur í kvöldmat!  Sko ég er þessi týpa sem vill sko helst hafa steik með brúnuðum á sunnudögum!  Og ummm hvað þetta var nú gott (nú fengi mamma kast) restin af famelíunni fékk nú grillaðar pylsur með öllu enda búið að bíða eftir slíku og í gær skein sólin og svona ;)   Annars leit vikan svona út:

fiskur 2 1/2 X

egg 4x

kjöt 3x

kjúlli/svín 3x

magur ostur 1x

feitur ostur 4x

morgunkorn 2x

extra 15 af 21

Lenti í hálfgerðu ostahallæri, gleymdi alltaf að kaupa 11% ost en keypti endalaust litlar gulrætur, hehe kannist þið ekki við það þegar maður fer að hamstra e-ð ákveðið.  En jæja magri osturinn komin í hús og ætla að reyna að fá mér á morgnanna þessa vikuna 15g morgunkorn og túml. 30 g magran ost.

Verð nú að deila því með ykkur að ég ásamt mömmu og frænkum mínum fjöldaframleiddum Sörur fyrir fermingu hér á laugardaginn.  Mér finnst voða gaman að dúllast í svona ;)   Þetta á að vera um 120 manna veisla og áætluðum við að gera ca 200 stk en þegar uppi var staðið og eftir 5 klst vinnu voru þær hvorki meira né minna en 417 stk!!! geri aðrir betur.  Ég stóðast það auðvitað ekki að smakka og fékk mér eins og eina pena og þær eru náttlega bara gúmmulaðigóðar ;)  

Ég er harðákveðin í að mæta í vigtun í Garðabæinn á hádeginu á miðvikudaginn veitir sko ekki af líka til að hafa smá hugmynd um ástandið fyrir páskana hehe ;)   Annars verða þeir nú bara teknir eins og jólin eins DDV vænir og hægt er.  Er að vísu að fara í brúðkaup laugardaginn fyrir páska (22. mars) og ég á víst afmæli þann dag líka ;) verð “dörtífæf” þannig að ég býst nú við að sá dagur verði e-ð frjálslegur ;)

Jæja nóg af blaðri í bili best að hella á gott kaffi er að fá góða vinkonu í heimsókn.

Síja

Gerður


Responses

  1. Hey! Við sjáumst kannski í vigtun á morgun! :)


Leave a response

Your response:

Flokkar