Posted by: Gerður | mars 4, 2008

JJJJJIIIIIBBBBÝÝÝÝÝ

ÉG er svo glöð að ég svíf um á bleiku skýji eftir vigtun dagsins.   Það runnu af mér 1.3 kg þessa vikuna, komin í nýjan tug og það besta að ég er komin í TVEGGJA STAFA TÖLU -eigum við að ræða þetta eitthvað frekar!!!  Þrátt fyrir utanlandsferð, smá óreglu á máltíðum (sérstaklega dagana sem ég fór út og kom heim) og pínu hvítvín og pínu bjór (vinkonu minni fannst þetta litla sem ég sötraði varla upp í nös á ketti en ég var alsæl :) )  Það er nú ekki hægt annað en að fara inn í vikuna með bros á vör og skipulagið gott enda var ég fljót að koma mér 100% strax í gær.

Læt hér uppskriftina af gulrótasúpunni fylgja með, hún er algjört æði:

40 g ósalt smjör (ég setti bara olíu)

1 laukur skorinn

2 msk engifer saxaður

700g gulrætur

1 L kjúklingasoð (ca 1-2 teningar)

100 ml appelsínusafi (ég var með 600g gulrætur og setti 2 dl ferskan safa s.s. 2 skammtar)

sjávarsalt og hvítur pipar

1 rauður chilli soðinn heill með og tekin svo úr og hent.

Steikja lauk og engifer í potti, malla í smá stund, setja smátt skornar gulrætur út í og steikt smá, soðið sett saman við og látið sjóða þar til gulrætur eru vel linar. Kæla aðeins -muna eftir að taka chilliinn úr, mauka svo í matvinnsluvél, bæta appelsínusafa út í og krydda.  Hafa sýrðan rjóma og graslauk með.

Í hádegismat fékk ég mér svo brauð grillað í ofni með osti ofan á.

góðar stundir

Gerður aftur glaða :)   :)   :)


Responses

  1. Jíííí glæsilegt!!! Svona á að gera þetta! Frábært hjá þér Gerður mín! Haltu áfram á þessari braut! Þetta er orðið svo spennandi! ;o)

  2. frábært hjá þér Gerður Glaða!!
    Ætla að prufa þessa Gulrótarsúpu, hljómar girnó.

  3. Ég segi bara jibbý!!! með þér
    til hamingju með þennan svaka áfanga :) Þú ert sko algjör dugnaðarforkur!

    Þetta gerir mig mjög bjartsýna um að ég geti það sama þegar ég fer til útlanda í sumar :)

    Gangi þér vel

  4. Frábært hjá þér :D Og til haminjgu með að sjá þessa betri tölu með færri tölustöfum á vigtinni :D

  5. ohh til hamingju skvísa! Æðislegt að vera komin undir 100 kílóin, það virðist muna svo miklu á 9x,x og 1xx,x!
    Svo nærðu þessu þrátt fyrir útlandaferð! Ef það er ekki dugnaður þá veit ég ekki hvað er! :D

  6. Ég skrifaði svar við spurningunni í ummælin á síðunni hjá mér en ákvað að setja það hér líka :)

    spínatið set ég oft á pönnuna í restina, sem sagt steiki grænmetið (finnst voða gott að steikja það fyrst þurrt með kryddi, setja svo smá vatn á pönnuna og lok yfir), þegar grænmetið er nokkurn veginn steikt, set ég spínatið á pönnuna, það tekur hellings pláss fyrst en er fljótt að minnka að ummáli.

    Spínatið er líka rosa gott í súpu, þá læt ég grænmetið malla í smá vatni og set svo spínatið rétt í restina til þess að mýkja það og mauka þetta svo allt

  7. hey ég prufaði Gulrótarsúpuna í hádeginu, átti ekki chilli þannig að ég setti bara chillikrydd í staðinn. Mér finnst of mikið að steikja uppúr allri þessari olíu, notaði bara leyfilega skammt 5 gr pr manna. Einnig hefði mátt minnka vatnið aðeins þannig að maður þyrfti ekki að borða svona mikið af henni, annars….Nokk gott bara.

  8. Frábært – innilega til hamingju.

  9. Já Aðalheiður ég gleymdi að taka það fram í uppskriftinni að nota leyfilegan skammt af olíu, mér fannt líka súpan pínu þunn en sumir vilja hafa hana þannig að ég skellti bara inn uppskriftinni eins og hún kom fyrir :)


Leave a response

Your response:

Flokkar