![]()
![]()
![]()
Já get ekki annað sagt en að ég sé bara hundfúl! 300 g upp!!! ekki það sem ég átti von á. er svo svekkt að ég gæti öskarað. Ræddi nú aðeins málið við Kristínu og komst að þeirri niðurstöðu að vera ekki að borða nóg! Humm hljómar asnalega en þegar ég lít yfir vikuna þá hefur einn og einn mjólkurkassi orðið eftir, eins með ávöxtinn hef kannski borða 2 stk og svo jafnvel hrökkbauð eða þá skipt út fyrir kartöflu hef heldur alls ekki verið dugleg í vatninu. Held að þetta allt svona súmmerað saman sé sökudólgurinn og þá er bara að REYNA að detta ekki í vorkun og reyna að líta á þetta sem læróm.
*Vera nákvæmari að vigta og klára alla skammta.
*Drekka VATN!
Verð nú að deila með ykkur smá sögu af dóttur minni. Ég var með grænmeti í skál sem hádegismat hér áðan og hún ætlaði að fara fá sér hætti svo við og sagði “mamma ertu búin að mæla”? ég sagði svo vera þá hætti mín við -veit orðið hvað það þýðir þegar mamman er búin að mæla skammtinn sinn. Svo var ég að gæða mér á skyrköku í desert og hún er algjör kökudesertakelling. Þá sagði mín “mamma viltu gera svona handa mér og þú verður að mæla það!” Já segum svo að börnin læri ekki það sem fyrir þeim er haft
Tek það fram að hún á 2 mánuði í að verða 4 ára skottan
Skelli inn mynd af herlegheitunum smakkaðist vel, gleymdi að vísu að setja sætu en það koma svosem ekki að sök því ég var með vel þroskað mango ofaná sem gaf gott sætubragð.
Svíþóðarferð ekki á morgun heldur hinn, sem betur fer verð ég í heimahúsi og vigtin verður með í för það er á hreinu!
Over&Out
Gerður
Vertu mild við þig. Hálft skref til baka er ekki vont, þú ferð fleiri fram næst. Vonbrigði gera okkurt ekkert gagn, en ég skil tilfinninguna.
By: Lettfimmtug on febrúar 26, 2008
at 2:51 pm
ææ ekki gott en líttu á björtu það hefði getað verið verra, ég fór upp um 1,1
en taka bara vigtina með og nota hana óspart. Sóða skemmtun í svíðþjóð.
By: Aðalheiður on febrúar 26, 2008
at 6:43 pm
Auðvitað átti þetta að vera Góða skemmtun í Svíþjóð. talandi um auka þumla.
By: Aðalheiður on febrúar 26, 2008
at 6:44 pm
Iss þú massar þetta Gerður mín
) Látum svona ekkert á okkur fá, þú ert greinilega búin að kryfja vandamálið og þá er að tækla þetta í tætlur! Knús og góða ferð og bið að heilsa Hafdísi
By: Lára on febrúar 26, 2008
at 10:30 pm