Posted by: Gerður | febrúar 18, 2008

ný færsla fyrir nýja titil :)

Jamm fannst vera komið nóg af því að hafa þennan titil þarna.   Gerðist úberdugleg í skápunum um helgina og HENTI öllu nammi sem þar fannst, rétt fann til í laugardagsnammi handa krökkunum, restin fór í ruslið!  Þegar maður er svona tæpur þá er víst bara eins gott að eiga ekkert af þessu til hérna heima, það sem ekki er til er allavega auðveldara að langa ekki í ;)

Fórum í rosa afmælisveislu í gær hjá mágkonu minni  Hún er svo rosalega myndarleg og kaffiborðið hjá henni er alltaf þvílíkt girnó -ekki beint það besta fyrir mig!  EN viti menn ég bara þambaði pepsi max og kaffi, fékk mér smá heitan brauðrétt svona til að skíta út diskinn og svo var mín svo sæt að skera niður melónur á disk, þurfti að vísu næstum að slást um þær við hana dóttur mína sem ELSKAR melónur hehe en hún gerði nú hnallþórunum góð skil líka ;)    Þetta gerði það samt sem áður að verkum að mín var frkar hungruð þegar heim kom og ekki búin að gera kvöldmatarráðstafanir -skamm, skamm og minn elskulegi bauðst til að fara á NINGS en ég er bara búin að fá mig fullsadda af þeim mat í bili hef ekki verið heppin með réttina þegar ég hef fengið mér (nema auðvitað laxabakkinn en hann er ekki til um helgar) þannig að ég bara skellti í gott salat með skinku og fullt af grasi og geri þvílíkt góða dressingu með olíu, balsamik, sinnepi og oregano og þetta var bara gott.  Ég stóða allavega ekki á blístri eins og sumir eftir marenstertu, kaffitertu, áxaxtabombu og sv frv! 

Vigtun á morgun býst nú ekki við miklu þar sem mín hefur aðeins beygt af beinu brautinni, verð að tak til í kollinum,  Dr. Phil (The Ultimate Weight Solution: The 7 Keys to Weight Loss Freedom ) komin á náttborðið og þið sem ekki þekkið til hennar þá mæli ég með henni, þar er nebblega tekið svoldið á því sem er í gangi í kollinum á manni.

Jæja ætli sé ekki best að fara hugsa um hvernig ég á að malla fiskinn…

Þangað til á morgun, góðar stundir.

Gerður


Leave a response

Your response:

Flokkar