Já flensan komin á þetta heimili því miður
Skvísan veikstist á sunnudaginn með hita og hósta, er nú nokkuð hress í dag en var með smá hitavellu í gær þannig að ég ákvað að hún yrði heima í dag. Litli kútur var svo komin með hita í gærkvöldi þannig að það er bara pestabæli hér í Mosó. Nóttinn var alveg ömurleg, þau voru bæði að vakna og koma upp í og þó svo að rúmið okkar sé nokkuð stórt þá er ekki hægt að vera þar með 2 börn þannig aðþað endaði með því að pabbinn fór á dýnu inn í herbergið hjá skvísunni og ég upp í með þann litla sem lá svo fast upp við mig að ég gat mig hvergi hreyft og vaknaði stíf og stirð
Náði þó að skreppa í vigtun og fund í gær, var heilu kílói léttari sem kom mér nokkuð á óvart þar sem ég hef ekki verið dugleg með ávextina (auk þessi sem ég fékk mér pönnukökur 2 stk *roðn*) alveg aukalega um helgina og olíuna en þessi léttingur gaf mér gott boost fyrir komandi viku
Nú er bara að vona það að yngri börnin hressist, sá stóri er í skólanum og vonandi fær hann ekkert þessa flensu! Ég er búin að fá nóg af því að hanga inni hef varla farið neitt nema í búð og vigtun síðan á sunnudag, úff maður gæti nú klikkast hehe
Jæja skvísan bíður eftir því að komast í Doppu fær aldrei leið á því svona í veikindunum.
Over & out
Gerður
p.s. Talandi um tilraunastarfsemina í eldhúsinu þá gerði ég gulrótaköku í gær og ó boy held ég sé hætt að reyna að baka DDV vænt hún var bara alls ekki góð! Ferlega svekkjandi. Gerði hinsvegar gómsætan lax í gækvöldi notaði að grunni uppskrift frá Dídí en svona gerði ég:
Olía, basilikum, oregano, paprikuduft,chilli sulta, tómatar og perlulaukur smátt skorið, hvítlaukur og lime (einnig rífa með rifjárni börkinn). Öllu blandað vel og sett ofan á laxaflök pakkað í álappír og inn í ofn GÓMSÆTT.
Til hamingju með léttinginn! Svaka flott hjá þér. Líst vel á lax uppskriftina hjá þér, hver veit nema maður prófi.
Notaðirðu hot paprika eða sweet paprika duft?
Gangi þér vel skvísa.
By: Dídí on janúar 23, 2008
at 1:48 pm
til lukku með léttinginn, stendur þig vel
By: Aðalheiður on janúar 23, 2008
at 4:15 pm
Hæ Dídí
ég notaði bara venjulegt paprikuduft, vissi ekki að það væri til sweet papriku duft
By: Gerður on janúar 23, 2008
at 4:31 pm
Glæsilegt til hamingju!
En ekki nógu gott með flensuna.. en það er víst að ganga um allt land..
By: Þuríður on janúar 23, 2008
at 7:55 pm