Jamm mín bara búin að kveðja 10 kíló síðan 30 okt! Fékk klapp og allt á fundi áðan. Það fóru s.s. 900 gr þessa vikuna sem er bara flott
Hef líka verið að taka mig á í fiskimálunum og eldaði t.d. í gær aðveg hreint frábæran laxarétt og á meira að segja afgang núna sem ég er að gæða mér á. Keypti líka meira af góðu hakki, svitnaði nú yfir verðinu en það verður bara að hafa það
Á fundi var mikið fjallað um súpur og ég hef aðeisn verið að prófa mig áfram með þær og þvílík snilld! Gerir grænmetiseldunina í hádeginu svo auðvelda.
Svo er líka á dagskránni að fá sér kort í WC (ekki klósettinu samt hehe
) sem er bara hérna hinugein við götuna, alls ekki nein afsökun að fara ekki nema leti.
Fyrst 10 kg eru í höfn ætti að vera tilefni til myndatöku ekki satt? Var nú búin að vera að reyna að setja inn myndir hér en ekki gengið þarf að fikta í þessu og fá kallinn til að mynda mig í kvöld.
Gerður
Glæsilegt! Til hamingju með 10 kílóin!
Væri gaman að sjá myndir, ég er viss um að það er mikinn mun að sjá!
By: Dídí on janúar 15, 2008
at 7:14 pm
Flott hjá þér góða ferð áfram, kveðjur Gamli sveppur
By: Gamli sveppur on janúar 15, 2008
at 8:15 pm
Til hamingju með þetta
ekki leiðinlegt að rjúfa 10 kílóa múrinn
By: Bumba on janúar 15, 2008
at 10:27 pm