Já þau eru bara að bresta á blessuð jólin, alltaf finnst manni desember svo fljótur að líða. Mataræðið hefur gengið bara vel undanfarna daga. Sit að vísu með grænmetisskammtinn í skál og með ídýfu með sýrðum rjóma sem átti aðvitað að borða með kvöldmatnum en gat bara ekki eldað í kvöld heldur fékk mér skyr til að fá inn próteinskammtinn áður en haldið var í verslunarleiðangur. Fyrir DDV hefði maður nú sennilega byrjað á því a fá sér skyndibita eða e-ð slíkt og svo farið að versla. Batnandi mönnum er best að lifa
Marseðillinn hjá mér um jólin lítur vel út eða er það ekki bara:
Aðfangadagur hádegi: DDV vænn möndlugrautur og auðvitað grænmeti
Kvöld: kalkúnn, fullt af steiktu grænmeti, srauðkál, sósa með sýrðum rjóma, smá fylling svona til að vera með og sætar kartöflur. Eftirréttur (verður eina svindlið mitt) tiramisu a al Halli svili.
Jóladagur: Hádegi: hangikjét minnsti skammtur (hjá teingdó) grænmetið etið heima.
Kvöld: einhverskonar fiskur
Annar í jólum: Hádegi: hryggur a al mamma, fullt af grænmeti.
kvöld: Kalkúnaafgangur
Morgunmat ætla ég að hafa bara eins og venjulega þ.e. AB mjólk og ávötxur og egg líka.
Þetta er svona það sem ég er búin að ákveða svo má nú alveg búast við að þetta taki einhverjum breytingum
Jæja nú þarf að fara malla rauðkál, súrar gúrkur og fleira gúmmulaði svo ég læt þetta duga.
GLEÐILEG JÓL!
Gerður
Töffari!!! Frábært hjá þér og nú fylgist ég með þér og læri kannski eitthvað í leiðinni hihi
GLEÐILEG JÓL gullmoli og njóttu hátíðarinnar
By: Lára on desember 23, 2007
at 7:26 pm
Flottur matseðill hjá þér.
Gleðileg jól!
By: Dídí on desember 24, 2007
at 4:35 pm