Þessi er tekin eftir 1 mánuð á DDV
Þessi er tekin daginn sem ég byrjaði á DDV
Er búin að vera að skoða möguleikana hér á blogginu og sé að ég á eftir að vera smá tíma að læra inn á þetta. Ætla mér að setja inn myndir svona fyrir/eftir dæmi, það er svo óendanlega gaman að skoða muninn og meira að segja sé ég mun á mér í andliti eftir einn mánuð! Er ekki enn búin að finna út úr því hvernig ég bý til sérstaka síðu með myndunum (ætla líka að gera eins og hinar bloggskvisurnar sem ég kíki á og læsa þeirri síðu). Stefni líka á þegar kjarkurinn leyfir þyngd og svoleiðis og auðvitað markmiðin
Ætla að prófa að skella inn á þetta blogg mynd sem tekin er af mér fyrsta daginn á DDV og svo önnur sem var tekin mánuí síðar sjáum hvað gerist :Þ
Gerður
![]()
Hæhæ, gaman að fá þig í hópinn.
Hérna: http://faq.wordpress.com/ eru góðar upplýsingar um ýmislegt, t.d. undirsíður, hvernig á að setja inn myndir og slíkt.
Hlakka til að fylgjast með þér.
By: Dídí on desember 13, 2007
at 7:45 pm
Já það tekur smá tíma og fikt til að átta sig á þessu
En ef þú vilt þá er hér örstuttar leiðbeiningar:
Búa til nýja síðu: Ferð í Dashboard / Umsjón-flipinn / Pages-flipinn / Create a New Page-tengill
Þegar þú ýtir á Create a New Page tengilinn opnast síða þar sem þú getur sett inn fyrirsögn og texta á síðuna. Svo ef þú býrð til margar síður og vilt að þær birtist í ákveðinni röð á aðalsíðunni þinni þá er til hægri á þessari Búa-til-síðu-síðu svona blár kassi sem á stendur “Page order”. Þar seturðu bara inn númer. Síðan sem á að vera fremst fær númerið 0, næsta 1 o.s.frv. Þarna sérðu líka bláan kassa til að setja inn page password.
Mjá… vona að þetta komi að gagni
By: Heiða on desember 13, 2007
at 8:10 pm
Hey stelpur takk fyrir þetta, nú verður fiktað í kvöld
Gerður
By: Gerður on desember 13, 2007
at 9:39 pm