Var að klára hádegismatinn minn sem var vigtaður skv. DDV af nákvæmni og smá pælingu. Það eru orðnar örugglega 3 vikur síðan ég gerði það síðast og mikið djö… líður manni vel
Byrjaði líka í ræktinni í morgun eftir akkúrat 1 mán pásu og ekki var það nú slæmt. Fór aftur í hópeinkaþjálfun eins og í haust og held ég að það verði fínt að taka 6 vikur svoleiðis. Var svo að velta því fram og til baka með mér hvernig kort ég ætti að kaupa og hvað hagstæðast og allt það. Niðurstaðan var sú að ég skellti mér bara á árskort. Ég finn (í fyrsta skipti) hvað það gerir mér gott að æfa og ég sé að hreyfingin er e-ð sem ég verð að halda inni þannig að þetta var bara það besta í stöðunni. Við vorum svo að ræða markmið í morgun við þjálfarann og ég var svo löngu búin að ákveða markmið mitt fyrir þessar 6 vikur. Ég ætla mér að taka 6 kg á 6 vikum, þjálfarinn var nú pínu efins en ég veit að á DDV 100% er það svo vel raunhæft, þannig að það er eins gott að standa sig 100% og sýna það og sanna að þetta er hægt
Dagurinn í dag byrjar vel og það er eins gott að fara að vera skipulagður aftur og fylla inn dagbókina og telja vel og vandlega.
GP
Held bara áfram mínu striki eins og alltaf. Er bara að drukna í faglegum lestri, verkefnavinnu og svo auðvitað vinna og familí.